Auglýsing

Bölvun B manneskjunnar, blessun A manneskjunnar???

19. apríl 2006 klukkan 20:02
Hver hefur ekki heyrt um A og B mannsekjur. Þessi flokkun var fundin upp til að lýsa svefnvenjum fólks en svo virðist vera sem helmingur fólksins þarna úti sofni yfir stundinni okkar og spretti svo á fætur og ná að taka sig til fyrir leik og starf langt áður en útsendingar á Íslandi í bítið hefjast. Þessi hópur fólks kallast A manneskjur og það vill svo  til að ég heyri til þessa hóps. 

 
Svo er það seinni helmigurinn. B manneskjur eru hópur fólks sem vaknar aldrei sekúndu áður en þess er þörf og vakir svo langt eftir nóttu að njóta menningarlífsins á kráum borgarinnar og hlýða og söng náttuglanna. Meðan ,,ka-ching’’ heyrist í búðarkössum skemmtistaða borgarinnar heyrist ,,zzzz,, úr svefnherbergi A-manneskjunnar.

A og B manneskjur geta farið alveg ofboðslega í taugarnar á hvor annarri, ólíkur lífstíll leiðir til þess að þegar A manneskjan vakir truflar það svefn B manneskjunnar og öfugt.
En hafið þið einhverntíman pælt í því að þessu ólíku hópar geta ekki án hvors annars verið? Hafið þið einhverntíman leitt hugann að því að sú staðreynd að þessir tveir hópar eru til heldur hjólum atvinnulífsins gangandi allan sólarhringinn?

 
Málið er það að ef allir væru A manneskjur hver ætti þá að taka leigubíl á næturnar, vera næturvörður smáralindarinnar, skemmta sér á kránum og standa næturvaktina á Landspítalanum? Ef allir væru B-manneskjur hver ætti þá að bera út blöðin, moka göturnar á morgnanna og sjá um Ísland í bítið? 

Þetta sannar að náttúran hefur svör við öllu og A og B manneskjur eru stór þáttur í því að samfélagið gengur upp!

Kærar kveðjur Harpa ArnarsJ

Harpa Sif Arnarsdóttir
9 athugasemdir